blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

11.10.2004

Frelsi? já takk

Gerðist væld og ákvað að play it cool og augl eftir herlegheitunum. Fékk lánaðan síma og númer og beið svo... þetta var sem sagt planið eða er planið er frekar hægt að segja! Kippti mér ekkert sérstaklega upp við það þegar símin hringdi. Gúrkutíð greinilega í gangi og blaðið að reyna að finna sér eitthvað að skrifa um! Þar sem einungis 2/100 byggir á einhverjum staðreyndum í þessu blaði þa verður fróðlegt að sjá hvað þeir segja um þetta !!! :/ Það kom svo ljósmyndari og ætlaði að smella af til að fullkomna bullið hjá þeim en hann var hrakin á brott. Það er ekki séns að ég fari að láta taka myndir af mér fyrir þetta eða hvað þa heldur í svona blað! Sé ekki að sá sem tók þetta finni það eitthvað frekar hjá sér að skyla þessu ef það birtast einhverjar myndir með glimmertárum og lýsing persónulegu tapi! Þetta er bara bissness! Ekkert væl!
Það eru einstakir dagar framundan. D&D eru að fara út úr bænum og gamla er skylin eftir umsjónalaus. Það er mjög sjaldan sem þetta gerist og er þar af leiðandi einstaklega ljúft. Aldrei þessu vant þa er ekki fullt af plönum fyrir þessa helgi. Það er mest ljómandi því það eykur á ljúfleikan og frelsið :) það er kanski erfitt að skylja þessa frelsis baráttu-áráttu í mér. Held að maður verður að hafa upplifað að hafa verið fastur í alla enda til að skylja. þetta er löngun í að gera hluti sem maður hefur aldrei tima/getu/einveru/tækifæri til að gera. Á tímabili var það mesta sportið að labba laugavegin um kvöldmataleytið!! mad eh!! já kanski! en ef maður hefur verið fastur í langan tíma.. þa skylur maður! Geri mér líka fullkomnlega grein fyrir þvi að ég kætist yfir öllu... og líka pínku litlu hlutunum! Þannig það getur reynst erfitt að skylja laugavegs-kvöldmats-rölt !

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Ég skil það :)
Kv,

Durturinn ;)

10:08 AM

 

Post a Comment

<< Home